• Á febrúartilboði bjóðum við upp á vinsælu, rauðu og bláu Íslandshálsmenin okkar á sérstöku tilboði!

    Litlu hálsmenin voru áður á 4.790 kr. og 4.990 kr en eru nú bæði á 1.990 kr.

     

    Það eru engar vörur í þessum flokk.

    LoadingUpdating...
    1. Pages: « First < Previous 1 2 34
  • „Við hjónin höfum hannað og framleitt jólaóróa úr við og plexígleri síðan 2004. Nýr jólaórói er búinn til á hverju ári og sá nýjasti fyrir 2012 köllum við Jólasnjór,“ segir Hulda Sveinsdóttir hjá Raven Design. Hulda og Hrafn Jónsson, eiginmaður hennar, hafa nýverið flutt fyrirtæki sitt í frumkvöðlasetrið í Eldey á Ásbrú í Reykjanesbæ. Áður voru þau með framleiðsluna inni á heimili sínu en fannst tímabært að flytja framleiðsluna út af heimilinu.

    Þau Hulda og Hrafn framleiða mikið af minjagripum ýmiskonar og eru í fjölbreyttu handverki. Nú er hins vegar jólavertíðin hafin og jólasveinar og jólaóróar eiga hug þeirra allan.

    „Það eru alltaf miklar vangaveltur eða saga á bak við hvern jólaóróa. Til dæmis vorum við með 2009 Vonarstjörnu árið 2009 til að benda fólki á að horfa fram á við, Ást og englar voru fyrir 2010 til að minna okkur á ástvinina allt um kring. Kærleikur var í fyrra, hvatning til að gefa frekar en að þiggja og í ár er það Jólasnjór. Hvert snjókorn er einstakt, fallegt og spennandi, ekkert snjókorn er eins í heiminum líkt og við mannfólkið, öll erum við sérstök eins og Snjókorn,“ segir Hulda í samtali við Víkurfréttir. Jólaóróarnir eru fáanlegir í við og í plexígleri, með eða án ártals.

    Nýtt í ár hjá Raven Design eru jólasveinarnir, þrettán talsins, Grýla, Leppalúði og Jólakötturinn.
    „Þetta er tveggja ára undirbúningur sem kemur saman í þesari hönnun. Vinkona okkar, hún Anja, teiknaði þá eftir okkar hugmyndum. Grýla er svolítið ógnandi, Leppalúði töffarinn og Jólakötturinn sérlega illkvittinn að sjá,“ segir Hulda.

    Þau Hulda og Hrafn framleiða fjölmargt annað í vinnustofu sinni í Frumkvöðlasetrinu Eldey á Ásbrú í Reykjanesbæ. Þau taka samt hluta af vinnunni með sér heim og klára og ganga frá vörunni heima  hjá sér í 100 ára gömlu fjósi sem þau eru að gera upp og búa í í Njarðvík.

    „Við hjónin byrjuðum í handverki 1999 en fyrirtækið Raven Design var formlega stofnað 2009. Við sækjum okkar innblástur aðallega til lögunar Íslands og búum til glasabakka, ostabakka, kertastjaka og servíettuhringi, allt í lögun landsins. Að auki gerum við skart úr plexígleri, svo sem hrafnahálsmen, armbönd úr leðri og fleira skemmtilegt,“ segir Hulda.

     

    Frétt úr Víkurfréttum. Sjá nánar hér.

     

  • Raven Design hefur hannað og framleitt jólaóróa úr við og plexígleri síðan 2004, nýr jólaórói er búin til á hverju ári, sá nýjasti fyrir 2012 köllum við “Jólasnjór”.

    Það eru alltaf miklar vangaveltur eða saga á bak við hvern jólaóróa t.d. 2009 vorum við með Vonarstjörnu til að benda fólki á að horfa fram á við, Ást og englar voru fyrir 2010 til að minna okkur á ástvinina allt um kring. Kærleikur var í fyrra, hvatning til að gefa frekar en að þiggja og í ár er það Jólasnjór. Hvert snjókorn er einstakt, fallegt og spennandi, ekkert snjókorn er eins í heiminum líkt og við mannfólkið, öll erum við sérstök eins og Snjókorn.

    Jólaóróarnir okkar eru fáanlegir í við og í plexígleri, með eða án ártals.
    Nýtt í ár hjá Raven Design eru Jólasveinarnir þrettán talsins, Grýla, Leppalúði og Jólakötturinn. Er þetta tveggja ára undirbúningur sem kemur saman í þesari hönnun, vinkona okkar Anja teiknaði þá eftir okkar hugmyndum – Grýla svolítið ógnandi, Leppalúði töffarinn og Jólakötturinn sérlega íllkvittinn að sjá 🙂

    Hægt er að skoða vörurnar hér að neðan.

     

    Jólavara

    Það eru engar vörur í þessum flokk.

    1. Pages: « First < Previous 1 2 34
  • Raven Design

    Það er ekki á hverjum degi sem Raven Design vörurnar rata í veðurfréttirnar en hún Snjólaug Ólafsdóttir veðurfréttakona skartaði þessum fína hrafnahálsmeni í kvöldfréttum Stöðvar 2 þann 24. ágúst 2012.

    Hægt er að sjá veðurfréttirnar hér:

    Veðurfrétt 1

    og

    Veðurfrétt 2

Please note that we are currently not shipping internationally.

Nýjar vörur